Hugsanir Baunans

25 ára eyjadama sem býr í Kaupmannahöfn um þessar mundir og les talmeinafræði við Kaupmannahafnarháskóla.

miðvikudagur, september 14, 2005

Spes danir

Hversu furðulegt er að segja Heij þegar maður hittir einhvern og Heij Heij þegar maður kveðjur! Danir eru sko alveg sér á báti...

En lenti í því að labba inn í vitlausa íbúð í kvöld, frekar vandræðalegt. Var svo upptekin við að tala í síman þegar ég var að labba yfir til Evu og Jökuls í mat, að ég fór upp vitlausan stiga og labbaði inn í ókunnuga íbúð. Var fljót að biðjast afsökunar og drífa mig út, veit ekki hvað aumingja konan hefur haldið! En íbúarnir hér að Kollegíinu verða bara að gjöra svo vel og fara að venjast því að Rannslan er flutt á svæðið, getur stundum verið svoldið utanviðsig...

2 Comments:

At september 14, 2005 12:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

svoldið????

 
At september 14, 2005 3:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hahahhaha.. þú ert svo mikill púlli. ætla samt ekki að vera með neinar yfirlýsingar, því það er ekta ég að gera e-ð svona. algjör viggó viðutan..

 

Skrifa ummæli

<< Home