Hugsanir Baunans

25 ára eyjadama sem býr í Kaupmannahöfn um þessar mundir og les talmeinafræði við Kaupmannahafnarháskóla.

föstudagur, febrúar 02, 2007

Tóri enn...

Eftir langa og góða afslöppun eftir prófin hefur danska baunin tekið við sér og ákveðið að blogga aðeins. Prófin gengu sæmilega, munnlega aftakan var ekki eins slæm og ég bjóst við, náði þeim fja... allavega. Eftir síðasta prófið var tekið hressilegt djamm á hinum fræga Kagsaakollegíbar ásamt fjölda Íslendinga og skálað fyrir próflokum. Ef marka má heilsuna daginn eftir var kannski aðeins of vel tekið á því...en grunar að þetta hafi þó bara verið smá upphitun miða við það sem koma skal 22. febrúar þegar Eyjaskvísurnar 3 Hjördís, Eyrún og Dröfn koma til Köben, ekki nema 20 dagar í þær :o)
Síðustu 2 vikur hafa svo liðið í mjög mikilli afslöppun og leti, HM hefur þó séð um að halda mér gangandi, horft á flest alla leiki sem hafa verið sýndir hér í Danmörkinni...hef þó bara fengið að sjá 2 Íslenska leiki...en maður reddar sér með því að hringja bara heim í gegnum sype og fá lýsingu gegnum símann :o)
Get þó viðurkennt það að Danmörk - Ísland tók mikið á hvort sem talað er um andlega eða líkamlega, mikið hoppað og öskrað í þeim leik. Ætla ekki að reyna að lýsa þeim ömurlegheitum að þurfa vera föst í baunalandinu eftir það tap, danirnir í blokkinni minni höfðu nú samt vit á því að nefna þennan leik sem minnst...greinilega farnir að þekkja skapstyggð Rönnslunar þegar íslenskar íþróttir eiga í hlut. Fannst því ekki leiðinlegt að sjá Dani tapa gegn Pólverjum eftir 2x framlengdan leik...lét þó sem minnst á því bera á meðan leiknum stóð, þar sem ég hefði þá sennilega verið líflátin á staðnum með alla öskrandi Danina í kringum mig...
Annars er lítið um fréttir út Danmörkinni, skólinn að hefjast aftur í næstu viku og svo er andlegur og líkamlegur undirbúningur hafinn fyrir komu stelpnanna...grunar að það verði mun meira fréttnæmt efni í blogg eftir að þær yfirgefa borgina :o)
Med venlig hilsen, danska baunin.

3 Comments:

At febrúar 02, 2007 8:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

It´s alive it´s alive!!!
veivei 20 dagar!!
ég er byrjuð að undirbúa herlegheitin andlega.. svo er dröfn að kom til mín í hugleiðslu í kvöld..við sendum þér góða strauma!!!
sjáumst eftir 20

knus & kram!!

 
At febrúar 02, 2007 9:51 e.h., Blogger Ranna said...

uummmmm finn bjór- og djammstrauma streyma um mig :o)

 
At febrúar 03, 2007 12:48 f.h., Blogger Hjördís said...

bíddu á bara ekkert að blogga fyrr en eftir það?
Annars verður eþtta settleg ferð þar sem ekkert áfengi verður haft við hönd og alltaf farið að sofa kl.11 og vaknað 7am, sofið út einn daginn og vaknað 8.30!

 

Skrifa ummæli

<< Home