Hugsanir Baunans

25 ára eyjadama sem býr í Kaupmannahöfn um þessar mundir og les talmeinafræði við Kaupmannahafnarháskóla.

þriðjudagur, desember 06, 2005

Komin Desember!

Jæja það er víst kominn desember og ár og aldir síðan ég bloggaði síðast, 10 dagar eða svo! Enda farin að fá skammir frá litlu systur... Engin sérstök ástæða fyrir því að lítið hefur verið bloggað, nema helst að það er ekki mjög mikið áhugavert að blogga um þessa dagana.
Dagurinn í dag var þó alveg met hvað óheppni mína varðar! Sko á sunnudaginn týndi ég lyklakortinu mínu að blokkinni sem ég bý í (svona lyklakort eins og maður fær á hótelum og í klefana í Herjólfi)... ekki alveg nógu gott, en ég var búin að sjá aukalyklakort hér uppi í eldhúsi og ætlaði bara að stela því, í gær ætlaði ég svo að setja það í póstkassann minn svo ég myndi nú ekki týna því líka, en setti það í vitlausan póstkassa, og það varð auðvitað að vera póstkassi fyrir íbúð sem engin býr í þessa stundina!! þannig að í dag varð ég að fara til Húsvarðarins hér á Kollegíinu, ljúga að honum að ég hefði sett "mitt" kort óvart í vitlausan póstkassa og fá hann til að opna, sem hann gerði, en svo þegar ég fer að prófa kortið passar það auðvitað ekkert í hurðina, er bara kort úr einhverri annarri blokk!!! þannig að ég þarf að fara á fimmtudag og segja honum að ég hafi týnt blessuðu kortinu, hann heldur örugglega að ég sé eitthvað hrifin af sér, alltaf hjá kallinum!! Ekki mjög myndarlegur kall þannig að það verða bara að vera hans hugarórar...
Allaveg svo dreif ég mig loks út í morgun eftir þetta bras með húsverðinum, en nei nei fór út á inniskónum, og var ekki með lykil til að komast afur inn!! þannig að ég fór á inniskónum niður á bókasafn að læra, fékk ekki fáa hneykslunarsvipi frá stígvélasjúkum dönum í rigningunni! svo þegar ég kom á bókasafnið fattaði ég að ég hafði gleymt peysu, og það er sko alltaf ógeðslega kallt á bókasafninu, þannig að ég var að læra á inniskóm í stuttermabol í skítakulda!! maður má sko ekki vera með úlpuna inni á lesrými í bókasafninu!! frekar pirrandi dagur!!
En yfir í eitthvað léttara, tók jólakæruleysi á lærdóminn um helgina, skellti mér í búðarráp báða dagana, verslaði jólagjafir og annað skemmtilegt, fór svo á jólamarkað niðurá Nyhavn, alveg ótrúlega jólalegt,.. missti mig aðeins í verslun á jóladóti, var bara komin í svo svakalegan jólagír... en það var ljúft að sleppa aðeins frá bókunum, get ekki neitað því :o)
En nú er það bara harkan sex í lærdómi þar til að ég tek flugið til Íslands, það nálgast óðfluga, 11 dagar í dag!! Fæ þó smá pásu, þar sem að það er julefrokost á laugardaginn hérna í blokkinni minni og svo er annar julefrokost fyrir bekkinn á flöstudeginum áður en ég kem heim, eins gott að vera stilltur þar svo maður missi ekki af fluginu til Íslands morguninn eftir...
En Rannslan kveður í bili úr taugastrekkjandi próflærdómi

4 Comments:

At desember 07, 2005 3:07 f.h., Blogger Hjördís said...

Á ég ekki bara að sjá um að vekja þig fyrir flugið eins og ég gerði fyrir Herjólf hérna einu sinni?? hmmmmm :)

 
At desember 07, 2005 2:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hehe við erum nú með eindæmum óheppnar systurnar... Minn dagur var líka svona í gær!!!! Keyrt á burran minn og svo varð bilinn rafmagnslaus er maeðal eins af mörgu sem ég lenti í.... En svona er þetta, gott að maður hafi nú smá húmor fyrir sjálfum sér ;) heheh en allt stefnir í hörku veislu á langholtsveginum!!! Þýskan og sálfræðin eru komin í höfn þarf bara að tækla Sál 403 á morgun og eftir það er bara party party time....
Venlig hilsen frá Island
Lita systir sem og hitt pakkið á Langholtsvegi 147 ;)

 
At desember 08, 2005 7:02 e.h., Blogger Hjördís said...

p.s. mundu bara að leggja inná kortið þitt svo þú eigir fyrir farinu ;)

 
At desember 09, 2005 2:20 f.h., Blogger Ranna said...

HAHAHAHHAHA já skal muna það, eða kanski frekar að muna að eyða ekki of miklu á föstudagskvöldið...

 

Skrifa ummæli

<< Home